Shipping policy

Sendingarupplýsingar

Sendingarmöguleikar eru eftirfarandi:

Bréfapóstur (almennt bréf, 1-3 virkir dagar eftir að sent er) - 400 kr ef að pantað er fyrir minna en 3.000 kr.

Næsta pósthús (1-2 virkir dagar eftir að sent er) - 0 kr. ef pantað er fyrir meira en 9.900 kr, annars 650 kr.

Pakki heim að dyrum (1-3 virkir dagar eftir að sent er) - 800 kr.

Ef að pöntunin þín er að andvirði minna en 2.999 kr og kemst inn um kemst inn um lúgu færðu upp valkostinn að senda sem almennt bréf. Bréf eru ekki skráð í kerfið hjá Póstinum en koma til þín beinustu leið heim með póstinum inn um lúguna í kringum hádegi 1-3 virkum dögum eftir að sent er, yfirleitt 1-2 dögum. Athugið að bréfapóstur er ótryggður og órekjanlegur.

Sendingar sem fara beint á pósthús taka 1-2 virka daga að berast þangað - yfirleitt aðeins einn dag - sendingin er skráð og þú færð SMS um leið og pakkinn er skannaður inn á pósthúsinu næst þér.

Pakki heim að dyrum kemur með heimkeyrslu Póstsins og er hún þá keyrð út milli 17 og 22 kvöldið eftir að við sendum af stað til þín og þarf þá einhver að vera heima til að taka á móti sendingunni. Þú færð sms frá Póstinum daginn sem sendingin þín fer í heimkeyrslu ef þú skráir GSM númerið þitt hjá okkur þegar þú pantar. Ef enginn er heima til að taka við sendingunni þá fer hún beint á næsta pósthús og er þá tilbúin til afhendingar þar morguninn eftir.

Einnig er hægt að velja um að sækja eftir samkomulagi pöntunina þína til okkar og þá finnum við tíma sem hentar.

Sendingar sem fara beint á pósthús eða í heimkeyrslu eru skráðar sendingar, rekjanlegar og í ábyrgð hjá Póstinum.
Við tökum ekki ábyrgð á þeim sendingum sem fara sem bréf eftir að þær fara frá okkur.

Ef gengið er frá pöntun fyrir klukkan 16:00 á virkum degi ætti sendingin þín að fara af stað frá okkur samdægurs og í flestum tilfellum er hún komin til þín strax daginn eftir.
Sem dæmi - ef þú pantar fyrir kl 16:00 á þriðjudegi er sendingin mjög líklega komin til þín strax á miðvikudegi, annars fimmtudegi.
Þetta eru viðmið en að sjálfsögðu geta orðið undantekningar hér á og sendingar tekið lengri tíma en við leggjum okkur allar fram við að koma öllum sendingum áleiðis til Póstsins eins fljótt og mögulegt er.

Við viljum benda á frábæra þjónustu Póstsins inni á postur.is, þar sem hægt er fara á netspjall og athuga hjá þjónustufulltrúa hvort að sending sé á pósthúsi. Athugið þó að sendingar sem sendar eru sem almennt bréf (sem komast inn um lúgu) eru ekki skráðar í kerfið nema þær komist síðan ekki inn um lúguna, þá fer sendingin til baka á pósthúsið og er þá skráð þar í kerfið seinni partinn (yfirleitt um kl 15) og þá er hægt að nálgast sendinguna þar.