Refund policy

Skilafrestur

Hjá Coral er alltaf 30 daga skilafrestur og þá líka hægt að fá endurgreitt. Þetta á einnig við um útsöluvörur.

Vörum þarf að skila í upprunalegu ástandi, eðlilega er ekki hægt að skila notuðum vörum. 

Ef þú vilt skila vöru sem þú keyptir hjá okkur er best að hafa samband við okkur sem fyrst í gegnum Facebook eða í tölvupósti og við sendum ykkur allar upplýsingar.

Ef þú býrð úti á landi eða hefur ekki tök á að koma með vöruna til okkar, þá þarft þú að senda okkur vöruna í pósti á þinn kostnað. Við sendum þér svo nýja vöru á okkar kostnað.

Ef svo óheppilega vill til að vara reynist gölluð er best að hafa samband við okkur sem fyrst og við útvegum nýja vöru eins fljótt og mögulegt er.

Senda skal skilavöru að andvirði 3.000 kr eða hærra sem rekjanlegan póst.
Fljótlegast er að hafa samband við okkur á Facebook eða með því að senda tölvupóst á coral@coral.is.

Endurgreiðslur
Vörur eru endurgreiddar með sama máta og upphaflega var greitt með. Endurgreiðslur eru framkvæmdar þegar skilavara hefur borist. Ekki er hægt að taka staðfestingu á sendingarnúmeri frá Póstinum sem staðfestingu á vöruskilum. 

Athugið að sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur.

Millifærslur og staðgreiðsla
Ef greitt er með millifærslu eða staðgreiðslu í peningum, þá millifærum við til baka eftir að hafa fengið upplýsingar um millifærslureikning. Sendu okkur tölvupóst með öllum upplýsingum og við afgreiðum millifærsluna í næsta virka dag.

Greiðslukort
Endurgreiðslur inn á greiðslukort eru framkvæmdar næsta virka dag. Ef um er að ræða debitkort, þá gæti þurft að millifæra í einstaka tilfellum. Við verðum þá í sambandi við þig til að fá viðeigandi upplýsingar.

Netgiro eða Pei
Þegar Netgiro eða Pei hefur verið notað til að greiða fyrir vörur, þá fellum við niður kröfuna eða lækkum, eftir því sem á við. Niðurfellingar er hægt að framkvæma hvenær sem er áður en krafa fellur á eindaga, en lækkanir er aðeins hægt að framkvæma á virkum dögum.

Ef þú ert að skila vöru innan 14 daga frá pöntun, sem greidd var með Netgiro / Pei, þá er best að láta okkur vita í síðasta lagi kl. 14 síðasta virka dag fyrir eindaga svo það sé hægt að fella niður eða lækka kröfu án dráttarvaxta hjá Netgiro / Pei. Ef meira en 14 dagar eru liðnir frá því að þú pantaðir og þú hefur greitt kröfuna, þá endurgreiðum við þér með millifærslu.

Athugið að Coral.is tekur ekki ábyrgð á dráttarvöxtum sem kunna að vera fallnar á kröfur frá þriðja aðila (t.d. Netgiro / Pei).